Afskriftir vegna Jóns Ásgeirs og félaga.. rétt að byrja.

Nú á að afskrifa 23 milljarða vegna þessara kumpána. Og þetta er bara byrjunin á því sem við eigum eftir að tapa á þessum mönnum. Hvað skyldi Jón Ásgeir vera búinn að koma miklum peningum undan. Ég skora á fólk að hætta að versla í búðunum hans og þannig svelta svínið burt...

Nýtt Ísland, held að það sé engin von um það. Nema Ögmundur

Sá í fréttum að litli bjöggabófinn er að fara setja upp fyrirtæki í fyrrum herstöð í Keflavík. Og viti menn, ríkisstjórnin ætlar í viðskipti við hann. Það á sem sagt að halda áfram að leyfa honum að svindla og svína á þessu landi.

Og hver var svo næsta bófafrétt? Jú, að Pálmi í Fons sem keypti af sjálfum sér og seldi sér flugfélag nokkrum sinnum fær að halda því. Svei svei.

Eini ráðherrann sem ekki hefur snúist 180 gráður við að komast í ríkisstjórn er genginn úr henni.

Ekki mikil von fyrir þetta land.


Þrír litlir munaðarleysingjar á Íslandi í dag. Er einhver aflögufær???

Á morgun verður borin til grafar ung falleg þriggja barna móðir. Börnin  munaðarlaus því faðir þeirra er einnig látinn fyrir nokkru. Elsta barnið, 22 ára stúlka reynir nú af alefli að halda litlu fjölskyldunni saman. Litlu bræður hennar eru 7 og 2. ára. Þau búa í örlítilli íbúð í Hafnarfirði á vegum bæjarins. Bjakhjarl þeirra er mjög veikur. Öll þið sem eigið afgang, veitið þeim aðstoð. og munið að margt smáll gerið eitt stórt.  Bankanr. 140 - 25 70155.   kl. 1602872259

Hreiðar Már segir...bla bla bla

Alveg er það merkilegt þegar fjölmiðlar eru að vitna í þessa angurgapa og þar að auki á forsíðu. Er þetta í alvöru eða er verið að gera grín að þeim? (smb. fréttablaðið í dag).

Ég bara þoli ekki þegar þessir gangsterar eru að koma fram með einhvern stórasannleik um sviðna jörð hér eftir þá sjálfa. Sjá þeir ekki nokkurn skapaðan hlut hvað þeir eru búnir að gera af sér?

Meira að segja þó að þeir álpist til að tjá sig um eitthvað sem maður/kona er jafnvel sammála fer maður/kona að efast um réttmæti þess af því að þessir aular sem eru búnir að kollsteypa hér öllu til helvítis eru að tjá sig um málefnið.

Ef þeir sjá ekki sóma sinn í að halda sér til hlés, (sóma????) þá fer ég fram á að fjölmiðlafólk sé ekki að vitna í þá.

Það er eins og rauð dula framan í fólk!!!!!!!!

Þetta er nóg til þess að ég verð reið í allan dag.


Er Steingrímur J. að segja frá því sem koma skal? Afsakið, og allt skal verða gleymt

Er það afsökunarbeiðni sem þjóðin bíður eftir frá glæpamönnunum sem komu okkur á hausinn? Ó nei, Steingrímur. Er hann með þessu að segja að þeir verði ekki ákærðir og dæmdir. Bara biðja afsökunar og svo er allt gott. Ég vil ekki sjá afsökunrbeiðni frá þessum mönnum. Ég vil frystingu á peningunum sem þeir stálu. Og ég vil sjá þá í fangelsi. Og síðast en ekki síst, ég vil að hætt verði að frysta og fella niður skuldir þeirra. Samanber skuldir Jóns "glæpamanns" Ásgeirs. Og ég vil að hætt verði að moka milljörðum inn í fyrirtæki sem þeir eru búnir að tæma. Samanber Sjóvá. Þetta er ekki þolandi lengur.

Aumimgja Sigmundur. Sveltur hann kannski?

Það er slæmt að það skuli vera lokað hjá hjálparstofnunum. Hvert leitar aumingja Sigmundur með sín  33. þúsund á mánuði. Hann hefur meira að segja minna en strípaðir öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem lifa ekki heldur skrimta. Reyndar lítur hann ekki út fyrir að svelta, með undirhöku og alles.

Í alvöru talað eru menn sem ekki borga til samfélagsins ekki kallaðir sníkjudýr???


Finnur fjármálamógúll sveittur í sjónvarpinu.

Í fréttum var Finnur kúlulánþegi látinn svara fyrir lögbannsbeiðni Kaupþings. Athygli vakti að hann var með sveittan skallann. Skyldi vera farið að fara um hann? Vonandi.

Næsta síða »

Um bloggið

Arndís Ósk Hauksdóttir

Höfundur

Arndís Ósk Hauksdóttir
Arndís Ósk Hauksdóttir
Ég er tveggja barna móðir, amma og guðfræðingur sem er annt um íslenskt samfélag.

Bloggvinir

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 2142

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband